Selma skoraði í sigri Rosenborg

Selma Sól Magnúsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Selma Sól Magnúsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Arnþór

Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir skoraði í 2:0 sigri Rosenborg á Brann í norsku úrvalsdeildinni í dag.  

Selma Sól kom Rosenborg yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leikIne Berre tvöfaldaði síðan forystu Rosenborg á 76. mínútu.   

Rosenborg situr í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 37 stig en Vålerenga er á toppnum með 48 stig.  

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert