NFL-goðsögnin Tom Brady birti mynd af Willum Þór Willumssyni á Instagram reikning sínum í dag.
Willum Þór skoraði þriðja mark Birmingham City í 3:2 sigri liðsins gegn Wycombe Wanderers í ensku C-deildinni í knattspyrnu.
Brady er hluthafi í Birmingham en hann keypti hlut í félaginu á síðasta ári.
Hér fyrir neðan má sjá myndina sem Brady birti.