Atli á leið til Belgíu

Atli Barkarson er á leiðinni til Belgíu.
Atli Barkarson er á leiðinni til Belgíu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Atli Barkarson, leikmaður Sönderjyske í Danmörk, er á leiðinni til Zulte-Waregem í belgísku B-deildinni.  

Upphæðin er talin vera í kringum 300 þúsund evrur eða rúmar 46 milljónir króna. Atli mun ferðast til Belgíu í dag og klára læknisskoðun.  

Atli, sem er 23 ára bakvörður, hefur leikið með Sönderjyske síðan í janúar árið 2022. Hann hefur leikið 61 leiki fyrir félagið, gefið átta stoðsendingar og skorað tvö mörk.  

Atli gekk til liðs við Sönderjyske frá Víking en hann varð bæði Íslands- og bikarmeistari með liðinu. Fyrir það hafði Atli spilað fyrir Fredrikstad í Noregi.   

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert