Elías Már lagði upp gegn Kristiani og félögum

Elías Már Ómarsson á æfingu með íslenska landsliðinu.
Elías Már Ómarsson á æfingu með íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Elías Már Ómarsson lagði upp í 2:1 sigri NAC Breda gegn Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í dag.  

Kristian Hlynsson var í byrjunarliði Ajax og lék fyrstu 56 mínúturnar. Tveimur mínútum síðar kom fyrsta mark leiksins en Matthew Garbett skoraði það eftir stoðsendingu frá Elíasi Má.  

Jorrel Hato jafnaði metin fyrir Ajax 63. mínútu. Á fyrstu mínútu í uppbótartíma skoraði Jan Van den Bergh sigurmark Breda.  

Ajax og Breda sitja í níunda og tíunda sæti með þrjú stig hvor.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert