Emilía hetja Nordsjælland

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Nordsjælland

Íslenska landsliðskonan Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði bæði mörk Nordsjælland í 2:1 sigri liðsins gegn Köge í dönsku úrvalsdeildinni í dag.  

Köge komst í 1:0 forystu á 34. mínútu eftir sjálfsmark frá Emilie Byrnak. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Rebeka Winther, varnarmaður Köge, rautt spjald.  

Á 59. mínútu jafnaði Emilía metin fyrir Nordsjælland. Aðeins sjö mínútum síðar kom hún Nordsjælland yfir með sínu öðru marki.   

Mörkin urðu ekki fleiri og situr Nordsjælland á toppi deildarinnar með sex stig eftir tvo leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert