Rautt spjald og töpuð stig hjá Real

Kylian Mbappé lék sinn fyrsta deildarleik með Real í kvöld.
Kylian Mbappé lék sinn fyrsta deildarleik með Real í kvöld. AFP/Jamie Reina

Spánarmeistarar Real Madrid töpuðu stigum er liðið mætti Mallorca á útivelli í fyrstu umferð spænsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld.

Leikurinn byrjaði vel fyrir Madridinga því Brasilíumaðurinn Rodrygo skoraði á 13. mínútu eftir stoðsendingu frá landa sínum Vinicius Junior.

Mallorca neitaði að gefast upp og Kósóvóinn Vedat Muriqi jafnaði á 53. mínútu og urðu mörkin ekki fleiri.

Vont varð síðan verra hjá Real því franski varnarmaðurinn Ferland Mendy fékk rautt spjald í uppbótartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert