Reiður Ronaldo neitaði að taka við medalíu

Cristiano Ronaldo var allt annað en sáttur.
Cristiano Ronaldo var allt annað en sáttur. AFP/Patricia Moreira

Cristiano Ronaldo og liðsfélagar hans í Al-Nassr í Sádi-Arabíu máttu þola tap gegn Al-Hilal í meistarakeppninni þar í landi, 4:1.

Ronaldo kom Al-Nassr í 1:0 á 44. mínútu en Al-Hilal svaraði með þremur mörkum í seinni hálfleik.

Portúgalska stórstjarnan var allt annað en sáttur við liðsfélaga sína og lét þá heyra það vel þegar liðið hrundi í seinni hálfleik.

Þá strunsaði hann beint inn í klefa eftir leik og neitaði að taka við silfurverðlaunum með liðsfélögum sínum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert