Sterkur sigur hjá Frey

Freyr Alexandersson fagnaði sigri í dag.
Freyr Alexandersson fagnaði sigri í dag. Ljósmynd/Kortrijk

Kortrijk hafði betur gegn Standard Liège, 1:0, á heimavelli í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Freyr Alexandersson er þjálfari Kortrijk og Patrik Sigurður Gunnarsson ver mark liðsins. Gat Patrik fagnað því að halda hreinu í deildinni í fyrsta skipti.

Kortrijk er með sex stig eftir fjóra leiki og í níunda sæti deildarinnar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert