Jóhann Berg til Sádi-Arabíu?

Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því …
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því enska í vináttulandsleik í sumar. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er á leið til sádiarabíska félagsins Al-Orobah, sem leikur í efstu deild þar í landi.

433.is greinir frá því að Jóhann Berg sé þegar floginn til Sádi-Arabíu og muni skrifa undir samning við Al-Orobah.

Liðið hafnaði í öðru sæti í B-deildinni á síðasta tímabili og leikur því á meðal þeirra bestu á komandi tímabili. Yrði hann annar Íslendingurinn sem semur í Sádi-Arabíu en Sara Björk Gunnarsdóttir samdi við Al-Qadsiah í kvennadeildinni fyrr í sumar.

Teljast það ansi óvæntar fréttir þar sem ekki er langt síðan hann skrifaði undir nýjan eins árs samning við Burnley, sem leikur í ensku B-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert