Juventus byrjar á sigri

Samuel Mbangula fagnar marki sínu í kvöld.
Samuel Mbangula fagnar marki sínu í kvöld. AFP/Isabella Bonotto

Juventus vann öruggan sigur á nýliðum Como, 3:0, þegar liðin áttust við í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í Tórínó í kvöld.

Fer nýi knattspyrnustjórinn Thiago Motta því af stað með besta móti hjá Juventus en lærisveinar Cesc Fabregas lentu á vegg í fyrsta leiknum á meðal þeirra bestu.

Samuel Mbangula kom Juventus í forystu á 23. mínútu í sínum fyrsta leik fyrir aðallið Juventus.

Timothy Weah lagði upp markið og skoraði svo sjálfur skömmu fyrir leikhlé.

Undir lokin skoraði Andrea Cambiaso þriðja mark heimamann og það eftir undirbúning Mbangula.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert