Kolbeinn Finnsson er eftirsóttur þessa dagana en tvö tilboð í bakvörðinn eru á borði Lyngby, annað frá Hollandi og hitt frá Þýskalandi.
Tipsbladet greinir frá því að hollenska félagið Utrecht og þýska félagið Holstein Kiel hafi boðið fimm hundruð þúsund evrur í leikmanninn og búist er við að tilboðin verði samþykkt.
Kolbeinn er 24 ára gamall og hefur verið í lykilhlutverki hjá Lyngby síðan hann gekk til liðs við félagið í janúar 2023.