Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille eru í góðri stöðu eftir sigur á Slavia Prag frá Tékklandi, 2:0, í umspili um sæti í Meistaradeildinni í fótbolta í haust.
Liðin mættust í Frakklandi en seinni leikurinn fer fram í Prag eftir viku.
Hákon Arnar lagði upp fyrra mark Lille á Jonathan David á 52. mínútu leiksins.
Edon Zhegrova bætti við öðru marki Lille á 77. mínútu eftir sendingu frá David.
Hákon fór síðan af velli undir blálok leiks.