Sædís og stöllur í undanúrslit

Sædís Rún Heiðarsdóttir.
Sædís Rún Heiðarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Sædis Rún Heiðarsdóttir og liðskonur hennar í Vålerenga eru komnar í undanúrslit norska bikarsins í fótbolta eftir sannfærandi útisigur á Stabæk, 5:1, í dag. 

Sædís var í byrjunarliði Vålerenga en fór af velli um miðjan seinni hálfleikinn. 

Vålerenga er í góðum málum í Noregi en liðið er í toppsæti norsku úrvalsdeildarinnar með ellefu stiga forskot og komið í undanúrslit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert