Allt jafnt fyrir seinni leikinn

Elías Rafn Ólafsson.
Elías Rafn Ólafsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson og liðsfélagar hans í danska meistaraliðinu Midtjylland gerðu jafntefli, 1:1, við Slovan Bratislava í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í haust. 

Elías varði mark Midtjylland en gestirnir frá Slóvakíu komust yfir á 59. mínútu. 

Edward Chilufya jafnaði metin fyrir Midtjylland tuttugu mínútum síðar og þar við sat. 

Sigurvegarinn fer í Meistaradeildina en tapliðið í Evrópudeildina. 

Þá vann Sparta Prag frá Tékklandi sænska meistaraliðið Malmö, 2:0, í fyrri leik liðanna í Malmö í kvöld. 

Daníel Tristan Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Malmö. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert