Íslendingaslagur í úrslitum norska bikarsins?

Selma Sól Magnúsdóttir.
Selma Sól Magnúsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir og liðskonur hennar í Rosenborg eru komnar í undanúrslit norska bikarsins í fótbolta eftir útisigur á Víking, 2:0, í dag. 

Selma Sól kom inn á 60. mínútu leiksins en hún byrjaði og skoraði gegn Brann í stórleik norsku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi. 

Rosenborg mætir toppliði Vålerenga, sem Sædís Rún Heiðarsdóttir spilar fyrir, eða Brann í úrslitaleik bikarsins ef liðinu tekst að vinna Roa í undanúrslitum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert