Orri Steinn til Spánar?

Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson. mbl.is/Hákon Pálsson

Real Sociedad hefur áhuga á framherjanum Orra Steini Óskarssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu. 

Orri er leikmaður FC Köbenhavn en hann hefur byrjað tímabilið ansi vel í Danmörku og skorað fjögur mörk í fimm leikjum. 

Samkvæmt RadioMarca á Spáni hefur Real Sociedad mikinn áhuga á Íslendingnum. Orri var áður orðaður við Giorna en Köbenhavn hafnaði tilboði spænska liðsins. 

Orri yrði annar Íslendingurinn til að spila fyrir Sociedad en Alfreð Finnbogason lék hjá liðinu um tveggja ára skeið, frá 2014 til 2016. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert