Fyrsti sigur Leeds á tímabilinu

Mateo Joseph lagði upp laglegt mark fyrir Daniel James í …
Mateo Joseph lagði upp laglegt mark fyrir Daniel James í kvöld. AFP/Glyn Kirk

Leeds United gerði góða ferð til Sheffield og lagði heimamenn í Sheffield Wednesday að velli, 2:0, í þriðju umferð ensku B-deildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld.

Með sigrinum fór Leeds upp í fjórða sæti þar sem liðið er með fimm stig eftir að hafa gert jafntefli í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.

Brenden Aaronson kom Leeds yfir á 24. mínútu eftir glæsilegt spil gestanna.

Í upphafi síðari hálfleiks tvöfaldaði Daniel James forystuna þegar hann slapp í gegn eftir laglega stungusendingu Mateo Joseph og vippaði boltanum snyrtilega í netið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert