Jóhann Berg tilkynntur í Sádi-Arabíu

Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, er genginn til liðs við sádiarabíska félagið Al-Orobah. 

Jóhann kemur til Al-Orobah frá Burnley á Englandi en hann endursamdi við enska félagið fyrr í sumar og lék aðeins einn leik á nýhöfnu tímabili með liðinu.

Landsliðsmaðurinn skrifar undir eins árs samning við Al-Orobah sem er nýliði í efstu deild í Sádi-Arabíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert