PSG með sýningu

Bradley Barcola skoraði tvívegis fyrir PSG í kvöld.
Bradley Barcola skoraði tvívegis fyrir PSG í kvöld. AFP/Bertrand Guay

París SG vann gífurlega öruggan sigur á Montpellier, 6:0, í annarri umferð frönsku 1. deildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld.

PSG er á toppi deildarinnar með sex stig og markatöluna 10:1. Montpellier er í 11. sæti með eitt stig.

Staðan var 2:0 í hálfleik eftir að Bradley Barcola og Marco Asensio skoruðu.

Í síðari hálfleik bætti Barcola við öðru marki sínu auk þess sem Achraf Hakimi, Warren Zaire-Emery og Lee Kang-In komust allir á blað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert