Lewandowski hetja Barcelona

Robert Lewandowski fagnar sigurmarkinu.
Robert Lewandowski fagnar sigurmarkinu. AFP/LluisGene

Barcelona er með tvo sigra eftir tvo leiki í spænsku 1. deildinni í fótbolta en liðið lagði Athletic Club að velli á heimavelli í kvöld, 2:1.

Barnastjarnan Lamine Yamal kom Barcelona yfir á 24. mínútu en mark úr víti frá Oihan Sancet á 42. mínútu sá til þess að staðan í hálfleik var 1:1.

Þannig var hún fram að 75. mínútu er Robert Lewandowski skoraði sigurmarkið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert