Draumabyrjun ungstirnisins hjá Real Madrid

Endrick fer frábærlega af stað í Madrídarborg.
Endrick fer frábærlega af stað í Madrídarborg. AFP/Pierre-Phillipe Marcou

Brasilíumaðurinn ungi Endrick skoraði þriðja mark Real Madrid í 3:0-sigri á Real Valladolid í efstu deild spænska fótboltans í höfuðborginni í dag. 

Endrick, sem er 18 ára gamall, kom inn á fyrir Kylian Mbappé á 86. mínútu og tíu mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Real. 

Federico Valverde kom Real Madrid yfir á 50. mínútu leiksins og annað markið skoraði Brahim Diaz á 88. mínútu. 

Real Madrid er með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert