Glódís vann Meistarabikarinn gegn Sveindísi

Glódís Perla Viggósdóttir og liðskonur í Bayern unnu Meistarabikarinn.
Glódís Perla Viggósdóttir og liðskonur í Bayern unnu Meistarabikarinn. AFP/Justin Tallis

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og liðskonur hennar í Bayern München höfðu betur gegn Sveindísi Jane Jónsdóttur og liðskonum í Wolfsburg, 1:0, í Meistarabikar Þýskalands í dag. 

Liðin mættust í Dresden en Meistarabikarinn er á milli deildar- og bikarmeistara síðasta tímabils. 

Glódís og Sveindís léku báðar allan leikinn en sigurmark Bæjara skoraði Klara Bühl á níundu mínútu leiksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert