Naumur sigur í fyrsta leik Kompany

Serge Gnabry skoraði sigurmark Bayern.
Serge Gnabry skoraði sigurmark Bayern. AFP/Tobias Schawrz

Bayern München hafði betur gegn Wolfsburg, 3:2, í fyrstu umferð efstu deildar Þýskalands í knattspyrnu karla í Wolfsburg í dag. 

Þetta var fyrsti leikur nýja stjórans Vincent Kompany í deildinni. 

Jamal Musiala kom Bayern yfir á 20. mínútu leiksins en Lovro Majer skoraði í tvígang í upphafi seinni hálfleiks og kom Wolfsburg yfir, 2:1. 

Sjálfsmark og sigurmark Serge Gnabry sáu þó til þess að Bayern vann leikinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert