Nökkvi skoraði í átta marka leik (myndskeið)

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði glæsilegt mark fyrir St. Louis City …
Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði glæsilegt mark fyrir St. Louis City í nótt. Ljósmynd/St. Louis City

Knattspyrnumaðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði þriðja mark St. Lou­is City gegn Portland Timbers í bandarísku MLS-deildinni í nótt.

Liðið er nú í 13. og næst neðsta sæti með 24 stig eftir 26 leiki í Vesturdeildinni. Portland Timbers er í 7. sæti með 37 stig.

St. Lou­is City var 3:1 yfir í hálfleik og Felipe Mora minnkaði muninn í 3:2 áður en Nökkvi skoraði fjórða mark St. Lou­is City mínútu síðar.

 

 

Mora skoraði svo þriðja mark Portland áður en hann fékk beint rautt spjald á þriðju mínútu uppbótartímans. Þrátt fyrir að vera manni færri skoraði Evander Ferreira jöfnunarmark Portland á níundu mínútu uppbótartímans og leikurinn endaði 4:4.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert