Barcelona selur varnarmanninn

Mika Faye er kominn til Rennes frá Barcelona.
Mika Faye er kominn til Rennes frá Barcelona. Ljósmynd/Barcelona

Franska knattspyrnufélagið Rennes hefur fest kaup á senegalska varnarmanninum Mika Faye frá Barcelona.

Rennes greiðir rúmar tíu milljónir evra fyrir leikmanninn. Barcelona getur keypt hann til baka á 25 milljónir evrur og þá fær spænska félagið 30 prósent af kaupverðinu, verði hann seldur frá Rennes til annars félags.

Porto í Portúgal hafði einnig áhuga á leikmanninum en mistókst að semja um kaupverð við Barcelona og lá leiðin því til Frakklands.

Barcelona keypti Faye frá Kustosija í Króatíu á síðasta ári fyrir 1,5 milljónir evra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert