Eitt lið með fullt hús eftir tvo leiki

Dusan Vlahovic og félagar fara vel af stað.
Dusan Vlahovic og félagar fara vel af stað. AFP/Isabella Bonotto

Juventus hafði betur gegn Verona, 3:0, á útivelli í 2. umferð ítölsku A-deildarinnar í fótbolta í kvöld.

Juventus vann Como með sömu markatölu í fyrstu umferðinni og fer afar vel af stað á nýju tímabili.

Serbinn Dusan Vlahovic kom Juventus yfir á 26. mínútu og bakvörðurinn Nicoló Savona bætti við öðru markinu á 39. mínútu.

Vlahovic var aftur á ferðinni á 53. mínútu með marki úr víti og þar við sat. Þótt ótrúlegt megi virðast er Juventus eina liðið með fullt hús eftir tvær umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert