Frakkinn verður liðsfélagi Jóhanns

Kurt Zouma verður liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar.
Kurt Zouma verður liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar. AFP

Franski knattspyrnumaðurinn Kurt Zouma er að ganga í raðir Al-Orouba í Sádi-Arabíu. Þar verður hann liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar, en íslenski landsliðsmaðurinn samdi við félagið í síðustu viku.

Zouma kemur til Al-Orouba frá West Ham á Englandi þar sem hann var fyrirliði á síðustu leiktíð. Hann lék 103 leiki með West Ham og varð Sambandsdeildarmeistari með liðinu.

Varnarmaðurinn hefur einnig leikið með Chelsea, Everton, Stoke og Saint-Étienne.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert