Guðrún hetjan í toppslagnum

Guðrún Arnardóttir skoraði sigurmarkið.
Guðrún Arnardóttir skoraði sigurmarkið. Ljósmynd/Alex Nicodim

Guðrún Arnardóttir var hetja Rosengård er liðið bar sigurorð á Häcken, 1:0, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Landsliðskonan skoraði sigurmarkið á 65. mínútu og sá til þess að Rosengård er enn með fullt hús stiga eftir sextán leiki.

Þá hélt Rosengård enn og aftur hreinu, með Guðrúnu í aðalhlutverki í varnarleiknum, en liðið hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk í leikjunum sextán.

Rosengård er með 48 stig á toppnum, átta stigum meira en Hammarby og Häcken í öðru og þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert