Landsliðsmaðurinn í aðgerð vegna kviðslits

Nathan Aké og Bjarki Steinn Bjarkason í vináttulandsleik Hollands og …
Nathan Aké og Bjarki Steinn Bjarkason í vináttulandsleik Hollands og Íslands í sumar. Ljósmynd/Alex Nicodim

Bjarki Steinn Bjarkason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Venezia á Ítalíu, er á leið í aðgerð í næstu viku vegna kviðslits.

Fótbolti.net greinir frá því að meiðslin hafi haldið Bjarka Steini frá keppni í byrjun tímabilsins og því hafi hann ekki verið í leikmannahópi Venezia í fyrstu leikjum þess.

Ljóst er að Bjarki Steinn verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi verkefni, leikjum gegn Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeild UEFA.

Vonast Bjarki Steinn til þess að verða klár í slaginn að nýju í byrjun október.

Hann er 24 ára gamall og á að baki fjóra A-landsleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert