Segir fólki að fylgjast með Skagamanninum

Hákon Arnar Haraldsson hefur leikið vel á tímabilinu.
Hákon Arnar Haraldsson hefur leikið vel á tímabilinu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur farið vel af stað með Lille á nýju tímabili í  franska fótboltanum.

Lille hefur unnið báða leiki sína í frönsku 1. deildinni til þessa og hefur Hákon lagt upp í báðum leikjum.

Vefsíðan Sorare Club í Frakklandi vekur athygli á frammistöðu Hákons á tímabilinu til þessa og býst við miklu af Skagamanninum unga.

Segir í færslu miðilsins á samfélagsmiðlinum X að Hákon hafi þurft síðasta tímabil, sem var hans fyrsta hjá Lille, til að aðlagast. Mun hann svo springa rækilega út á nýhafinni leiktíð.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert