Vill ekki fara til Sádi-Arabíu

Victor Osimhen.
Victor Osimhen. AFP/Alberto Pizzoli

Nígerski knattspyrnumaðurinn Victor Osimhen hefur lítinn áhuga á að fara til Sádi-Arabíu. 

Enskir miðlar greina frá en Osimhen er að reyna að losna frá Napolí en sádiarabíska félagið Al-Ahli hefur boðið 70 milljónir evra í framherjann. 

Napolí er reiðubúið að samþykkja það tilboð en Osimhen vill frekar bíða og sjá hvort að önnur stórlið í Evrópu bjóði í hann. 

Hins vegar gæti hann á endanum farið til Sádi-Arabíu þar sem að áframhaldandi vera í Napolí verður að teljast ólíkleg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert