Tímabilið gæti verið búið hjá kornunga knattspyrnumanninum Marc Bernal, miðjumanni Barcelona.
Samkvæmt miðlinum Sport á Spáni sleit Bernal krossband undir blálok leiks gegn Rayo Vallecano í efstu deild Spánar í gær.
Barcelona vann leikinn, 2:1, en á sjöundu mínútu uppbótartímans meiddist Bernal og sleit að öllum líkindum krossband.
Bernal, sem er 17 ára gamall, hefur byrjað alla þrjá leiki Barcelona á tímabilinu en hann er varnarsinnaður miðjumaður.