City samþykkir tilboð frá Sádi-Arabíu

João Cancelo er á leið til Sádi-Arabíu.
João Cancelo er á leið til Sádi-Arabíu. AFP/Oli Scarff

Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur samþykkt tilboð Al-Hilal frá Sádi-Arabíu upp á 21,2 milljónir punda í portúgalska varnarmanninn João Cancelo.

Cancelo mun að öllum líkindum samþykkja samning Al-Hilal og skrifa undir þriggja ára samning við félagið.

Portúgalinn hefur ekki spilað með City síðasta eina og hálfa árið eftir rifrildi við Pep Guardiola knattspyrnustjóra liðsins.

Hefur hann verið að láni hjá Bayern München og Barcelona undanfarna 18 mánuði. Hann hefur einnig leikið með Benfica, Valencia, Inter Mílanó og Juventus.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert