Fær loksins að spila fyrir Barcelona

Dani Olmo verður í leikmannahópi Barcelona í kvöld.
Dani Olmo verður í leikmannahópi Barcelona í kvöld. AFP/Manaure Quintero

Knattspyrnumaðurinn Dani Olmo fær að spila fyrir Barcelona eftir að félagið fékk loks leyfi til að skrá hann fyrr í dag. 

Barcelona mætir Rayo Vallecano á útivelli í kvöld en liðið hefur unnið fyrstu tvo leikina í efstu deild Spánar. 

Olmo snéri aftur til Barcelona í sumar frá RB Leipzig en hann ólst upp hjá spænska stórveldinu. 

Olmo var frábær með spænska landsliðinu sem varð Evrópumeistari í Þýskalandi í sumar. 

Erfiðlega hefur gengið hjá Barcelona að fá leyfi til að skrá Olmo sem leikmann félagsins út af ströngum reglum spænsku deildarinnar. 

Hins vegar fékk félagið að nota meiðsli Andreas Christensen, sem verður frá í nokkra mánuði, sem afsökun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert