Olmo hetjan í frumraun sinni

Dani Olmo sá til þess að Barcelona vann Rayo Vallecano.
Dani Olmo sá til þess að Barcelona vann Rayo Vallecano. AFP/Manaure Quintero.

Dani Olmo var hetjan í frumraun sinni með Barcelona þegar að liðið vann Rayo Vallecano, 2:1, í 1. deild Spánarfótboltans í Madríd í kvöld. 

Börsungar eru á toppnum með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leikina. 

Olmo, sem ólst upp hjá Barcelona, gekk í raðir félagsins fyrr í sumar eftir að hafa verið frábær á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar, sem Spánn vann. 

Unai Lopez kom Rayo Vallecano yfir á níundu mínútu en Pedri jafnaði metin á 60. mínútu. 

Dani Olmo skoraði síðan sigurmark Börsunga á 82. mínútu eftir góða sendingu frá Lamine Yamal. 

Þetta er fyrsti sigur Barcelona á heimavelli Rayo Vallecano í deildinni síðan 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert