Vinsæli Hollendingurinn snýr heim

Wout Weghorst er á leiðinni til Ajax.
Wout Weghorst er á leiðinni til Ajax. AFP/John Macdougall

Hollenski knattspyrnumaðurinn Wout Weghorst er á leiðinni til stórfélagsins Ajax í heimalandinu. 

Miðlar þarlendis greina frá en Weghorst kemur frá Burnley. 

Weghorst, sem er 32 ára gamall framherji, er afar vinsæll í Hollandi en hann hefur oft komið inn á og skorað mikilvæg mörk. Þá skoraði hann bæði mörk Hollands gegn Argentínu í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar í desember árið 2022. 

Argentína fór að lokum áfram en það hafði ekki áhrif á vinsældir Weghorst. 

Weghorst var á láni hjá Hoffenheim í Þýskalandi á síðustu leiktíð en hann lék með Manchester United fyrri hluta ársins 2023 og vann deildabikarinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert