Á leið í norsku úrvalsdeildina

Sveinn Aron Guðjohnsen.
Sveinn Aron Guðjohnsen. Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnumaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er að ganga til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Sarpsborg.

Það er norski miðillinn Nettavisen sem greinir frá þessu en Sveinn Aron, sem er 26 ára gamall, hefur leikið með Hansa Rostock í Þýskalandi frá því í janúar á þessu ári.

Hansa Rostock féll úr þýsku B-deildinni í vor en Sveinn Aron hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum með þýska liðinu á tímabilinu.

Sveinn Aron hefur einnig leikið með Spezia, Ravenna, OB og Elfsborg á atvinnumannaferlinum og þá á hann að baki 19 A-landsleiki þar sem hann hefur skorað tvö mörk.

Sarpsborg er með 23 stig í ellefta sæti norsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert