Franski knattspyrnumaðurinn Yacine Adli er genginn til liðs við Fiorentina frá stórveldi AC Milan.
Adli kemur upphaflega á láni en Fiorentina getur keypt hann eftir tímabilið og þá myndi hann skrifa undir fjögurra ára samning í Flórens.
Adli er 24 ára gamall miðjumaður sem ólst upp hjá París SG og hefur spilað 40 leiki fyrir AC Milan.
Hjá Fiorentina verður Adli liðsfélagi Alberts Guðmundssonar.