Erfið byrjun Jóhanns Bergs og félaga

Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. Ljósmynd/Alex Nicodim

Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og liðsfélagar hans í Al-Orobah máttu þola tap, 2:1, fyrir Al-Wehda í 2. umferð sádiarabísku deildarinnar í fótbolta í kvöld. 

Liðin mættust á heimavelli Al-Wehda en Jóhann Berg, sem er nýkominn til félagsins, lagði upp jöfnunarmark Al-Orobah. 

Hann var síðan tekinn af velli á 86. mínútu en eftir það skoraði Al-Wehda sigurmarkið. 

Al-Orobah er án stiga eftir fyrstu tvo leikina í þriðja neðsta sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert