Núnez fær fimm leiki í bann

Darwin Núnez er á leiðinni í fimm leikja landsliðsbann.
Darwin Núnez er á leiðinni í fimm leikja landsliðsbann. AFP/Frederic J. Brown

Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Darwin Núnez er á leiðinni í fimm leikja bann með landsliði sínu fyrir atvik sem átti sér stað á Copa America, Ameríkubikarnum, í sumar. 

Í undanúrslitum Ameríkubikarsins mætti Úrúgvæ Kólumbíu en eftir leik lenti hann í rifrildi við stuðningsmenn Kólumbíu. Kólumbía vann leikinn, 1:0, en tapaði fyrir Argentínu í úrslitaleiknum. 

Núnez fór ásamt öðrum leikmönnum Úrúgvæ upp í stúku til að verja fjölskyldur sínar frá slagsmálum stuðningsmanna. 

Núnez reyndi hins vegar að kýla stuðningsmann en liðsfélagarnir náðu að halda í hann. 

Þá fer Rodrigo Bentancur miðjumaður Tottenham í fjögurra leikja bann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert