Sædís og stöllur óstöðvandi

Sædís Rún Heiðarsdóttir eftir leik með íslenska landsliðinu.
Sædís Rún Heiðarsdóttir eftir leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir og liðskonur hennar í Vålerenga eru í frábærum málum í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Vålerenga vann Kolbotn, 1:0, á útivelli og hefur nú unnið níu leiki í röð í deildinni.

Vålerenga er fyrir vikið í fyrsta sæti deildarinnar með 54 stig, 17 stigum meira en Rosenborg, sem á þó leik til góða. 

Sædís Rún lék allan leikinn fyrir Vålerenga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert