Átta á sjúkrahús eftir eldingu á fótboltaæfingu

Átta voru fluttir á sjúkrahús vegna eldingarinnar.
Átta voru fluttir á sjúkrahús vegna eldingarinnar. AFP/Ralf Hirschberger

Átta manns voru flutt á sjúkrahús og þrír eru alvarlega slasaðir eftir að eldingu laust niður á fótboltavelli í Lidingö í Stokkhólmi í dag. 

Sænski miðilinn Svt greinir frá en samkvæmt honum staðfesti fótboltalið frá Svíþjóð að atvikið hafi átt sér stað í kringum æfingu liðsins. 

Samkvæmt Barry Levis, björgunarleiðtoga á staðnum, á atvikið að hafa gerst eftir að elding skall á tré. 

Fjöldi ungmenna stóðu undir trénu og urðu nokkur þeirra fyrir eldingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert