Fjögurra marka jafntefli í Safamýri

Kári Kristjánsson skoraði annað mark Þróttar.
Kári Kristjánsson skoraði annað mark Þróttar. mbl.is/Óttar

Grindavík og Þróttur úr Reykjavík gerðu jafntefli, 2:2, í 1. deild karla í knattspyrnu í Safamýrinni í kvöld. 

Grindavík er í áttunda sæti deildarinnar með 25 stig en Þróttur er sæti ofar með 27.

Ármann Ingi Finnbogason kom Grindavík yfir snemma leiks en á 13. mínútu jafnaði Unnar Steinn Ingvarsson metin. 

Kári Kristjánsson kom Þrótti yfir á 34. mínútu með marki úr vítaspyrnu, 1:2. 

Einar Karl Ingvarsson jafnaði síðan metin á 72. mínútu, 2:2, og þar við sat. 

Bæði lið eiga tvo leiki eftir í 1. deildinni. Grindavík á nánast engan möguleika á að komast í umspilið en Þróttur þarf að hafa heppnina með sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert