Heimir velur hópinn sem mætir Englandi

Heimir Hallgrímsson undirbýr Íra fyrir leikinn gegn Englandi.
Heimir Hallgrímsson undirbýr Íra fyrir leikinn gegn Englandi. Ljósmynd/@IrelandFootball

Heimir Hallgrímsson hefur valið sinn fyrsta landsliðshóp sem landsliðsþjálfari Írlands í fótbolta. Fram undan eru leikir gegn Grikkjum og Englendingum í Þjóðardeild Evrópu.

Framherjinn ungi Evan Ferguson frá Brighton og varamarkvörður Liverpool, Caoimhin Kelleher, eru á sínum stað í hópnum ásamt reynsluboltanum Seamus Coleman í Everton.

Einn nýliði er í hópnum, vængmaðurinn Kasey McAteer, sem leikur fyrir Leicester City. 

Írar taka á móti Englendingum 7. september og Grikkjum þann 10. september á Aviva-vellinum í Dublin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert