Pirlo rekinn frá Sampdoria

Andrea Pirlo var rekinn í morgun.
Andrea Pirlo var rekinn í morgun. AFP/Alberto Lingria

Andrea Pirlo hefur verið leystur frá störfum sem þjálfari Sampdoria á Ítalíu eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Eitt stig úr fyrstu þremur leikjunum og næstneðsta sæti er langt undir væntingum á þeim bænum.

Pirlo tók við Sampdoria sumarið 2023 en liðið hafnaði í sjöunda sæti í ítölsku B-deildinni á síðasta tímabili. Byrjunin á núverandi leiktíð hefur ekki verið góð og var Pirlo því rekinn í morgun. Andrea Sottil tekur við starfinu en sá yfirgaf Salernitana fyrir mánuði síðan.

Áður hefur Pirlo stýrt Juventus og tyrkneska liðinu Karagumruk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka