Slæm byrjun Mbappé hjá Real Madrid

Kylian Mbappé hefur alls ekki staðist undir væntingum hingað til.
Kylian Mbappé hefur alls ekki staðist undir væntingum hingað til. AFP/Cesar Manso

Real Madrid gerði jafntefli gegn Las Palmas, 1:1, á útivelli á Gran Canaria í efstu deild spænska fótboltans í kvöld. 

Real Madrid er með aðeins fimm stig eftir fyrstu þrjá leikina, einn sigur og tvö jafntefli. Þá hefur nýja stjarna liðsins Kylian Mbappé ekki enn komið að marki. 

Alberto Moleiro kom Las Palmas yfir en Vincius Júnior jafnaði metin í seinni hálfleik. 

Real er fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona sem hefur unnið alla sína leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert