Snéri aftur á völlinn eftir barnsburð

Dagný Brynjarsdóttir ásamt eiginmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni og syninum …
Dagný Brynjarsdóttir ásamt eiginmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni og syninum Brynjari Atla. Ljósmynd/Dagný Brynjarsdóttir

Dagný Brynjarsdóttir snéri aftur á knattspyrnuvöllinn í dag þegar lið hennar West Ham mætti París SG í æfingaleik í Perth í Ástralíu.

Dagný, sem er 33 ára gömul, eignaðist sitt annað barn í febrúar á þessu ári, soninn Andreas Leó, og hafði ekki leikið með West Ham frá því í lok maí árið 2023.

Hún kom inn á hjá West Ham á 36. mínútu í dag en leiknum lauk með naumum sigri París SG, 1:0, þar sem Romée Leuchter skoraði sigurmarkið á 23. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert