Alexandra og stöllur fara vel af stað

Alexandra Jóhannsdóttir fer vel af stað með Fiorentina.
Alexandra Jóhannsdóttir fer vel af stað með Fiorentina. mbl.is/Arnþór

Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir og stöllur í Fiorentina unnu fyrsta leik ítölsku A-deildarinnar í fótbolta á tímabilinu, 1:0, gegn Napolí á heimavelli í Flórens. 

Fyrsta umferðin fer fram um helgina en þetta var fyrsti leikurinn. 

Alexandra kom inn á 65. mínútu en tveimur mínútum síðar skoraði Daninn Sofie Bredgaard sigurmarkið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert