Valgeir Lunddal Friðriksson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við þýska félagið Düsseldorf.
Þetta staðfesti Düsseldorf rétt í þessu en Valgeir kemur til félagsins frá Häcken í Svíþjóð.
Hjá Düsseldorf verður Valgeir samherji Ísaks Bergmanns Jóhannessonar en liðið er í toppsæti þýsku B-deildarinnar.
Valgeir er 22 ára gamall bakvörður sem gekk í raðir Häcken frá Val í janúar 2021 en hann er uppalinn hjá Fjölni.