Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, lék sinn fyrsta leik frá því í maí á síðasta ári er hún kom inn á sem varamaður á 36. mínútu fyrir West Ham gegn París SG í æfingaleik í Perth í Ástralíu í gær.
Dagný eignaðist sinn annan son með eiginmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni í febrúar á þessu ári og lék sinn fyrsta leik sem tveggja barna móðir í gær.
West Ham birti myndskeið af endurkomu Dagnýjar á X-reikningi sínum í dag. Undir myndskeiðinu svarar aðgangur ensku úrvalsdeildarinnar:
„Frábært að sjá þig aftur á vellinum, Dagný.“
Dagný‘s first time back on the pitch since 2023 🤩⚒️ pic.twitter.com/lcYIrfdKQb
— West Ham United Women (@westhamwomen) August 30, 2024